Er ekki kominn tími á almennilegt ferðasögublogg?!?!! hmmm....
Núhh.. eins og þið getið rétt ímyndað ykkur var ansi mikill spenna í gangi 16.maí. Maður var náttúrulega búinn að vera að bíða eftir þessari ferð síðan í desember þegar við pöntuðum hana. Ég var gjörsamlega að fríka út og engan veginn að ná því að það væri loksins komið að þessu.
Flugið var laaaaaaaaaaannnngt og frekar leiðinlegt en bjargaðist þó þar sem verið var að sýna p.s. I love you... awww sætasta mynd í geiminum.. þannig að ég og Begga grenjuðum yfir henni á meðan GísliDavíð las og horfði á mynd um djöfulinn or som... speeeennó!!!
Núhh þegar við lentum tók við sekjúrítí tjékkið... sem ég persónulega var búin að kvíða fyrir. Sem betur fer var það svo bara allt í kei
þá tók við bið eftir farinu okkar... sem sagt Heiðrúnu... héldum í smá stund að hún hefði gleymt okkur ennnnn nei heldur betur ekki.... Heiðrún var mætt á JFK að sækja okkur og þvíílíkir fagnaðarfundir víví. Eftir það fórum við í subaróinn hennar, losuðum okkur við eldfjall og fórum að borða á Fridays. Eftir að hafa borðað og komist að ýmsu skemmtilegu eins og til dæmis að rör fljóta ekki uppúr í bandaríkjunum fórum við til Sea Cliff þar sem Hædí býr og hún sýndi okkur húsið... eða réttara sagt höllina sem hún býr í. Það er svo fáranlega stórt og flott að ég á bara ekki til orð. Við hittum þar Tinu, Matthew og Charlotte en Paul var ekki heima.
Við komumst að því að þetta fólk er bara yndislegra en allt og ég held að Heiðrún hafi verið þvílíkt heppin að lenda hjá þessu fólki.
Núhh eins og ég var búin að segja í einhverju öðru bloggi hérna vorum við sannir Íslendingar og skelltum okkur strax á djammið. Victoria vinkona Heiðarúnar kom og sótti okkur og við fórum á stað sem Hædí er vön að djamma á á föstudögum og heitir Savannah. Þetta var svo fáranlega skemmtilegur staður og sumir voru að fíla hann talsvert meira en aðrir. Hædí skellti sér á barinn og keypti lókal drykkinn handa okkur longælandæstí sem var ekki svo góð hugmynd.. þetta er barsta eitt það ógeðslegasta sem ég hef á ævinni smakkað..enda fullt af áfengið blandað saman í eitthvað sull... ojjj barasta... eníveis þá entumst við alveg hreint furðu lengi á djamminu þetta fyrsta kvöld miðað við tímamismun og flugþreytu.
Daginn eftir skelltum við okkur á svona Delí og keyptum okkur morgunmat sem við fórum svo með á SeaCliff ströndina og borðuðum þar... sjúklega næs að borða bara morgunmat úti á strönd... væri til í að geta gert það hérna heima. Við gerðum plan fyrir daginn og fórum svo heim að skipta um föt og svolleiðis...og GísliDavíð lenti í þessum líka þvílíku starwars slagsmálum við Matthew. Eftir mikil slagsmál skelltum við okkur í moll og pikkuðum upp átfitt fyrir kveldið. Skelltum okkur svo út að borða á Cheesecakefactory namminamm og ætluðum svo á djammið en sökum mikillar þreytu varð ekkert úr því. Þetta var kveldið þar sem við mættum þvottabjörnunum á pallinum fyrir utan húsið... ennn það var komið blogg um það þannig að ég nenni nú ekkert að vera að fara neitt mikið út í það.
Daginn eftir skelltum við okkur í morgun/hádegismat ásamt Victoriu á Applebees og fórum svo á american football leik. Það var afskaplega áhugavert þó svo að ég hafi persónulega ekki skilið neitt hvað var í gangi híhí. GísliDavíð greip bol og læti en það á víst að vera eitthvað voða erfitt að ná þessum Dragon bolum hehe. Eftir leikinn tókum við því bara rólega og skelltum okkur í bíó. Um kveldið var Begga algjörlega að missa það og það var endalaus vitleysa sem kom út úr henni okkur hinum til mikillar skemmtunar.
Núhhh næsta dag var frábært veður. Við ákváðum að fara í outlet sem var reyndar lengst í burtu en við létum okkur hafa það að keyra í góða veðrinu. GísliDavíð græddi allavega á þessari ferð þar sem hann kom heim brosandi með armani jakkaföt. Um kveldið hittum við svo Paul í fyrsta skiptið þar sem hann hafði verið i hækíngferð. Þau buðu okkur í grill og læti ásamt Victoriu og það var alveg frábært. GísliDavíð lenti í hörku StarWars familíufæti og ég veit ekki hvað og hvað. Vorum öll svo uppgefin eftir daginn að við fórum bara snemma að lúlla.
Næsta dag var planið að fara að kíkja inní Manhattan í fyrsta sinn en sökum rigningar vorum við ekki alveg í stuðinu fyrir það þaaaaannig að við kíktum aftur í mollið Peisí til mikillar ánægju haha. Sjoppuðum og sjoppuðum og komum fátæk en sæl til baka híhí.
Núuhh svo kom loksins að því. Við fórum innnnþeeeesirei eins og Bergþóra myndi kalla það. Vöknuðum eldsnemma ... eða svoleiðis...til að taka lestina frá Manhasset. Létum eins og verstu túristar og skoðuðum allt það helsta. Ground Zero, frelsisstyttuna (reynar bara frá Battery Park) , löbbuðum hálfa Brooklyn Bridge, WallStreet, GísliDavíð skellti sér í túr um Sameinuðu Þjóðirnar, TimesSquare og svo auðvitað Empire State þar sem pósið ógurlega varð til
J
Um kvöldið fórum við svo á tónleika í borginni með Augustana. Það var svoooo gaman. Gaurinn sem var að hita upp fyrir Augustana, David Ford, var mesta krútt í heimi og við enduðum öll á því að elska hann út af lífinu. En eins og ég sagði voru þetta frábærir tónleikar...allavega fannst mér það. Fullt af undarlegu fólki þarna.. einhver írskur blindfullur gaur sem átti gott spjall við Heiðrúnu og hann var víst bara einn mesti Augustana aðdáandi í heimi held ég barsta.. kunni öll lögin utanað og ég veit ekki hvað og hvað haha. Þetta kveld fundum við svo klárlega drykk ferðarinnar, Malibu&pinapple juice J
Næsti dagur var bara rólegheit þangað til seinnipartinn. Þá fórum við inní borgina og borðuðum á HardRock á TimesSquare. Við stelpurnar fengum fáranlega flottan kokteil og maturinn var fínn. Eftir matinn fórum við svo á Broadway sýninguna Mamma mía. Hún var algjör snilld. Vorum á fremsta bekk og manni fannst maður beinlínis vera uppi á sviðinu með fólkinu. Eftir sýninguna kíktum við aðeins í M&M búðina þar sem við sjoppuðum allskonar tilgangslaust drasl híhí.
Dagurinn eftir fór líka í borgarrölt. Kíktum í CentralPark sem var frábær. Vorum sjúklega menningarleg og keyptum okkur nesti sem við borðum þar í góða veðrinu. GísliDavíð fékk loksins ósk sína uppfyllta og fór í einhverja risa apple búð við CentralPark.
Um kveldið var svo djamm á Savannah ásamt Victoriu, Aaron og Rachel. Það var svooo mikil snilld að vera þarna og fáranlega gaman að geta loksins farið aftur út að skemmta sér með Heiðrúnu. Þetta kveld var barasta algjör snilld. Við hvíta fólkið skelltum okkur út á dansgólfið þar sem Begga tók allsvakaleg múv enda er hún náttúrulega bara svört, á meðan ég, Hædí og GísliDavíð vorum meira í þessu íslenska hliðar saman hliðar. Ákváðum svo á leiðinni heim að fara á diner og fá okkur að borða. Þar kom í ljós að sumir voru talsvert hressari en aðrir og Begga hitti gaur sem var algjörlega in the garbage eins og hún orðaði það og svo felt hún líka so sorry for Aaron greyið haha. Já þetta var snilldar kveld. Ég Hædí fengum okkur einhverjar súkkulaði pönnukökur sem voru eins amerískar og það gerist held ég bara híhí.
Bling svo kom eurovision dagurinn. Eins og fólk veit sem þekkir mig er ég ferlegt eurovision nörd og þess vegna á allsvakalegum bömmer að vera í bandaríkjunum akkúrat þegar eurovision var... ennnnnnn það var svo barasta allt í góðu. Við ákváðum að fara inní borgina og sumir voru talsvert þreyttari en aðrir eftir djammið daginn áður híhí. Við fórum á stjörnusafn á eitthvað ljósashow sem var mjög töff.. maður varð reyndar allsvakalega ringlaður á tímabili .. en þetta var allt saman rosalega flott. Eftir showið ákváðum við að labba meðfram CentralPark svo að ég og Heiðrún gætum gelgjast aðeins og fengið okkur sæti í GossipGirl tröppunum. Það var náttúrulega aðeins of svalt að láta taka mynd af sér þar J
Heiðrún var búin að skipuleggja kveldið fyrir okkur en vildi ekkert segja hvað við ætluðum að gera og rölti með okkur um mjög svo skuggalegt hverfi og mér persónulega var eiginlega hætt að lítast á blikuna.. en að lokum komum við að staðnum þar sem við áttum að borða. Staðurinn hét Lips og var staður þar sem gaurar uppdressaðir sem konur þjónuðu til borðs og voru með show. Sem sagt dragshow veitingastaður. Þetta gat eiginlega ekki verið fyndnara að gera þetta einmitt á eurovision kveldinu. Victoria kom og borðaði með okkur ásamt vini sínum frá Þýskalandim honum Sasha sem var ekki alveg að fitta þarna inní híhí. Við skemmtum okkur konunglega yfir þessu öllu saman nema ég held að Peisí hafi ekkert sérstaklega verið að fíla það þegar það komu tveir stripparar og héldu svaka show haha.
Eftir þennan þvílíka mat ætluðum við að kíkja inná einhvern stað inná Manhattan en það endaði allt í einhverju rugli þar sem strákar geta ekki farið frítt inn neinsstaðar.. frekar spes :/ en já við kíktum inná einn stað þarna og það var voða súr stemmning þannig að við ákváðum að fara bara á “okkar” stað.. sem sagt Savannah víví J
Þar var bara dansað fram á nótt í góðu stuði.
Þá var komið að seinasta heila deginum okkar. Við fórum í næsta bæ við SeaCliff og fengum okkur hádegismat þar í góða veðrinu. Síðan röltum við um og fórum í lítinn garð sem er bara rétt við húsið hennar Heiðrúnar, MemorialPark... þvílíkt sætur garður... J
Um kvöldið kíktum við á CheeseCakeFactory til þess að fá okkur ostaköku namminammm... fengum okkur einn kokteil í leiðinni sem var reyndar ekkert spes. Því næst lá leiðin á þann fræga stað Greens sem við erum búin að heyra svooo mikið um. Þar vorum við látin drekka einhvern lókal drykk með mjög misjöfnum afleiðingum svo ekki sé meira sagt.
Næsta dag var svo komið að því að fara heim. Skelltum okkur í hádegismat á grískan stað sem var algjört æði. Eftir það var bara eitthvað tjill og svo haldið á flugvöllin sem var bara algjörlega ömurlegt L.
Ennn svo er Hædí að koma heim í smá heimsókn í næstu viku J jeyjeyjey það verður svo mikið stuuuuð J
Annars er alveg heill hellingur búinn að gerast síðan einhver tók sig til og bloggaði hérna.
Helgina eftir að við komum heim frá BNA hélt ég og Begga uppá 21. árs afmælið okkar með þvílíku partýi. Það var Baywatch beach þema og það heppnaðist líka svona rosalega.... þetta var bara frábært partý og ég held bara að allir hafi skemmt sér vel J
Já ég held ég verði að klappa fyrir öllum þeim sem nenntu að fara í gegnum þetta blogg... eflaust eitt lengsta blogg í sögu sápukúlanna.
Jæja svo verður einhver annar að blogga um Hallgeirsey stelpur.. ég bara get ekki skrifað meira í bili híhí J

